mánudagur, nóvember 14, 2005

ME?

I wanna be on Leno´s coffee cup!

þriðjudagur, september 13, 2005

PARDON

Ég vil biðjast innilegrar afsökunar á letinni, ég hef verið mjög upptekinn seinustu viku.

Peyinn er farinn að bryðja parkódín forte hjá Actavis á launum. Pillurnar eru góðar á bragðið. Shout out til Robba rúsínu.

Í dag fór ég í Nýherja í Borgartúni. Á meðan að ég beið eftir afgreiðslu þá var þarna súla sem gegnir mikilvægu hlutverki sem partur af burðarvirki hússins. Súla þessi var síðan umvafin 6 labbtölvum. Allar voru þær nettengdar, þannig að ég var ekkert að tvínóna við hlutina og opnaði heimasíðu hljómsveitarinnar Dikta á þeim öllum. Svo fékk ég afgreiðslu.

Passaðu þig, ég kem úr launsátri!

-Áhugasamir hafið samband!

sunnudagur, júlí 03, 2005

Wurd!

Jæja nú er maður kominn af sjónum og getur farið að bölla meira!

Það eru komin 13 kvekende á M.O.B.B. og komin góð mynd á þetta, frekar sáttur með þetta, kalt mat! Ási er náttla meistariNN! og hann fær mitt "shout out" í þessari færslu. Nú reyndar fær vinkona mín Jaqui og vinur minn Keith líka shout out fyrir þetta laglega hljóðfæri sem þau sendu mér alla leið frá Ammríku! "Shout out!" ???

Heimurinn er lítill og fyndinn. Kannski ekki alltaf fyndinn, eins og fyrir fólk sem á í erfiðleikum í lífinu, en stundum fyndinn. Þannig er mál með vexti að ég hef í þessari viku sem var að líða horft á myndina Hidalgo með dananum spræka Viggo Mortensen(heyrst hefur að hann eigi son á Íslandi) og þótti hún góð. Nú á meðan ég var á sjó þá var ófáum klukkustundum eytt í L.O.T.R. leikinn minn. Zqli og ég tókum marathon. Nú svo á fös. seinasta horfði ég á R.O.T.K. í L.O.T.R trilógíunni. Sama kveld slógum við Zqli nørda metið og fengum okkur öl og spiluðum meir. Þetta sama kveld á Grandinu vorum við á Ókindartónl. og hvern haldiði að ég hitti ekki, Viggo Mortensen. Ég tók af okkur mynd drengjunum og set hana vonandi hér inn. Hann var með ólíkindum hrezz. Ætli hann hafi ekki verið hér á landi að hitta Georg Guðna félaga sinn!?

"Ten thousand strong, at least!"

-Áhugasamir hafið samband!

föstudagur, júní 10, 2005

Vó !

Jæja, hvaða hvaða. Nú er allt í gír og lengir lifir í gömlum, ekki satt Chrizz!?? ...ever!

Jöggi, ertu með bjór í hendi? Ef ekki, brunaðu þá í køleren og náðu þér í !

Eftir að hafa haft það gott, hollt og gott, þá hef ég ákveðið að færa setur mitt nær heimaslóðum. Ég mun trakt-hórast í allt sumar, þjóhnöppum mínum til yndisauka. Ég hef ákveðið að gráta ekki. "Góðan daginn hér!!"

GAUR !

Keith er að gera gott mót held ég, ef hann stendur við orð sín, settið á leið til landsins. Ekki pínlegt!

Og Ace my man, WORD!

Leti ?

-Áhugasamir hafið samband!

þriðjudagur, maí 10, 2005

...þá er þrennt er!

Ég var að fara með sömu fokking B/W filmuna í "prentun" í 3ja skiptið í dag! FOKK!!! Fyrst voru rendur á öllum myndunum, nú er "kusk" á flestum myndunum. M.F. Verst hvað það er ómyndarleg stelpa að vinna í Hansa á Laugaranum (við hliðina á Dikta). Myndirnar sökka samt. Nema 2-3, ein af stóra b og ein af JB og Scully.

Híí hahhh!!! Fékk bara nýjan iPod. Þannig að þeir sem segja að íslenska Apple búðin sé með lélega þjónustu geta haldið kjafti. But it´s still pink, ég meina rose.

Var í partyi um daginn hjá Bjarna of Jeff Who?. Þar hlustuðum við á Moscow með Strax. Síðan hlustuðum við á Sanity með HAM. Í DAG í útvarpinu minntist Búi B. á þetta Strax lag, þar á eftir spiluðu þeir Sanity með HAM, ooooog ég sá Sigurjón Kjartansson í Fjarðakaup, sem var mjög súrealísk upplifun. Það fyrsta sem ég gerði var að líta í kringum mig og leita að kamerum. Hélt að þetta væri Svínasúpu taka. En það var hinsvegar ekki. -En skemmtileg röð tilviljana.

T. minus 2 days!

Sælla er að gjefa en þiggja.

Er að leita mér að Hondu Prelude ´74 módeli, lítið eknu!

-Áhugasamir hafið armband!

laugardagur, maí 07, 2005

My heart is in jail !

Lights on the highway! Gott betur en sæmilegt band, ÁGÆTT! Svakalega er ég að fíla þessa pilta. Vonandi fer þessi fjandans diskur að koma út, so that I don´t have to worry!

Hitti Oddnýju í gær, ekki flakið, heldur systir hennar MDB. Fyndið! Hún var brakandi. Vinkona hennar var svo mega ölvuð að ég hef sjaldan séð annað eins, fyrir utan í Eyjum einu sinni, gaurinn sem var líklega bara dauður í alvörunni. Hver man ekki eftir því!

Var vitni að smá stimpingum fyrir utan og innan prikið! Hehe, það er svolítið kómískt að vera svona áhorfandi að handalögmálum, en adrenalínið var engu að síður til staðar. Karate vs. Taekwondo. -Finni toppaði þetta svo með hringsparki.

Mr. and Mrs. Gay. -Mér finnst það cool. -Sem minnir mig á það að ég er að fara á "gay" date með Gústa í kvöld og 2mur lessum. Sjáum hvernig það endar, er nebbla að vinna en það ætti nú ekki að skemma stemmarann.

Góðan daginn HÉR !

Hættur við NYC, og líklega T3. Allavega búinn að setja þetta á ís fyrir meistarastykkið, spyrjið Sigurjón Kjartansson betur útí þetta.

Sorry Thelma, það kemur fljótlega að því að ég stoppi!

Svakalega er franska skemmtilegt mál, verst að maður skilur hana ekki neitt.

Hvað er með þetta iPod dæmi. Fyrst stolið. Nýr í spilið, og hann er bilaður. Notaði hann ekkert, og hann er BLEIKUR í ofanálag. Passar samt vel við Scully og hans karma...

Who gets the last word in?

-Áhugasamir hafið samband!

sunnudagur, apríl 24, 2005

ISIS

...er hljómsveit. Ég held að tónlist hennar geti vel verið lýsandi fyrir mitt andlega ástand eins og er, akkúrat núna ;) Ég er í svona "rip your head off" stuði. Kannski maður sæki um í Fazmo, eða flytji til Akureyrar.

Djöfull er ég orðinn pirraður á Mosa. Ef ég væri ekki uppí rúmmi hálf sofandi, þá væri hann allur. Arg...

NYC eða Tikka T3? -Held ég skjóti á eplið. Vonandi gefur "La Luna" mér bara frí.

Ég þarf að fara að leita mér að vinnu.

Sorry Anna þetta með klakavélina. Hélt að ég væri búinn að laga. En mér sýndist hún aftur vera komin í fokk. Damn!
En djöfull voru Rússinn og Nautið hrikalegir á Sprekinu á lau. Alltaf jafn tussu gaman að heyra/sjá þá. Stína likes the Russian.

Næsta helgi, verður, hryzzileg. Ó mæ shitt!

Hafðu það gott, hollt og gott!

-Áhugasamir hafið samband!

sunnudagur, apríl 10, 2005

Zexty avril !

Jæja nú er "kjeppinn" orðinn árinu eldri, líkamlega, en ég yngist alltaf innávið! Akkuru er maður alltaf spurður sömu spurningar: "Jæja er þetta ekki allt annað, ný tilfinning, ertu allur breyttur?!" HAHAHAhahaha... Og ég svara alltaf "já"

Ég skeit á mig í mínum eigin leik, held ég, sorry allavega. Bara kaldur á kantinn næst!

John Butler Trio er að gera gott mót! Mist og Oldman eru efst á listanum eins og er!

Var að opna fyrsta páskaeggið mitt áðan, "Augu ei leyna ef ástin er heit" öss fleyg orð!

Útlitið er orðið þokkalega svart með plötu sumarsins, jafnvel ársins. Menn eru ekki á sama máli með takttík. Við þurfum að leggjast á eitt. Það væri allavega gaman að fá vel valda menn í allar stöður. Hahahaha Ási-nn.

Hvar er Byltan?

Ég er að hugsa um að láta verða af því að fara æfa eitthvað sniðugt. Er að hugsa um eitthvað austurlenskt. Eins og ginseng.

Hvar er settið?

-Áhugasamir hafið samband!

föstudagur, apríl 01, 2005

ShittFuckShittFuckShittFuckShitt

Ég er víst pirrand!

-Just ask Pussy!

miðvikudagur, mars 30, 2005

L.O.T.R.

Núúúúúú Er Ég Ölvaður - Hálfskák

þriðjudagur, mars 29, 2005

Figo!

Ég varð var við mikinn páskaháska á landanum seinustu helgi. Hver ælir í GLAS? Aldregi á ævinni hef ég séð fólk leika jafn miklar kúnstir og vera jafn frumlegt í notkun bjórglasa(1 pint) þessar seinustu helgar. Íslendingar eru sannir listamenn.

Ég er með massívan "shout out" lista þessa ferðina! Hér kemur bunan, "shout out out to": Ernu Babe, Retro/Airwaves gellunar, Sænska leður gaursins með gúllasið, NYC ladies and Little Light, Ace, Keith(aftur), Bjössa frænda, Justu, Haffa "Lu Homme" og Ægis sem ætlar að vera vel dillaður næstu helgi.
Anti shout out to: Hrönn!

Vinnuveitandi minn sagði að ég væri eins og kvensköp í framan!

Var að leggja inná settið í dag, einnig lagði ég inná element í miðstöð fyrir teppið! Fékk Ford-beygðu hosuna mína í dag. Sögulegur gripur svo maður segi nú ekki annað. Ég á 2 páskaegg eftir, þannig að ef þið húsmæður þarna úti eigið súkkulaði lovers sem dætur, þá er ég ykkar maður.

Hvaða litur á að vera á fokking settinu ? Grár? -Sleppi þessu bara og fer til Finnlands á villigaltarveiðar. Öss hvað ég til í það. Fá mér T3 tactical .308 með öllu og detta í það! -Borða grísakjöt út næsta áratug. Easy..

Er á leiðinni í djúpulaugina, það verður stemmari. Ég verð semsagt einn og 3 pæjur hinumegin. Hef strákana bara útí sal og læt þá benda. Ugla sat..

-Áhugasamir hafi samband!

miðvikudagur, mars 16, 2005

John!

...Constantin! Súzý! Skrapp með Lu Hawk og JB á Constantin í gær. Svaka ræma á ferð. Keanu var tussugóður og líka gellan úr Enemy At The Gates! Hirspurslaus húmor og axjón í bland! Nú ekki skemmdi fyrir að reggae hljómsveitin A Perfect Circle var með lagið Vacant í þessari mynd. Þessu kikvendi mæli ég tvídregið með!

Gaddi P. tók eitt prufu rennsli og sína, og ekki fór það betur en að hann skellti bakkelsi í ofninn, sem fær að malla núna með yfir og undirhita við 37 gráður C. Ég vil þó óska til hamingju, og segja "Cod bless you!".

Strákarnir í Dikta spiluðu með "one hour" fyrirvara á bar 11 á fimmtudag. Svo virðist sem meðlimur einnar sveitarinnar sem átti að spila það kveld hafi lent í alvarlegu bílslysi. Vona að hann sé á batavegi. En við hlupum svo eftirminnilega í skarðið. Það voru framin sannkölluð myrkraverk, einungis smáglæta frá ljósastaur vísaði mönnum veginn fram götu rokksins. Haukur "missti" glas og í sama augnabliki minnið. Þetta þótti fyndið og er okkur ferskt í minnum, nema Hauks, hann er ennþá minnislaus og sást síðast í stúdíói stöðvar 2, ber að neðan með 20 kílóa sekk af áburði í bandi sem hann kvað vera nýtt gæludýr sitt sem hét Óli.

Shout out to my man Steve Hubbak(?) hann er að gera gott mót. Njóttu veiganna! I like the new octagong!

Nú ég er á lausu, þannig að ef þú átt dætur á mínu reki sendu þær þá bara heim til mín!

-Áhugasamir hafið samband!