Hizzyfit !
hvaða hvaða. Ég er að hugsa um að setja á fót litla akstursþjónustu fyrir fræga Íslendinga. Jú þannig er mál með vexti að ég hef verið að leita mér að góðri helgarvinnu. Það skrýtna er að helgarvinnan fann mig! Seinustu helgi varð ég fyrir því óláni að fullur íslenskur karlmaður reif upp hurðina á bílnum mínum(Gumma) er ég ók makindalega niður Laugarveginn og hrópaði að mér: "Þú hefur ekkert betra að gera en að skutla okkur !" , og átti þá við sig og kvenkost þann er hann hafði upp á arm sinn. Mikil nafnleynd hvílir þó yfir henni.
Ég var þó snöggur að átta mig á að hér var ekki á ferðinni neinn venjulegur íslenskur karlmaður, heldur enginn annar er Hilmir Znær! Ég bauð honum og telpunni inn og við ókum á brott. Hann vildi meina að það væri langt að labba en stutt að keyra þangað sem þau ætluðu. Hann hefur ekki fengið hátt í stærðfræði sá, enda faðir hans íslensku kennari. En nóg um það, ég og Hilmir spjölluðum um daginn og veginn en vinkona hans var heldur staðföst á því að ég væri sætur strákur, ekki amalegt það. Hr. Znær vildi ólmur endurgjalda greiða þann að brúa bil milli skemmtistaðar og heimilis og bauðst til að láta mig fá hans prívat mobil númer, með einu skilyrði þó. Að ég hringdi einungis þegar ég væri með kvenmann uppá arminn og ætti leið í leikhúsið. Þá skyldi ég fá 2 miða að launum fyrir þetta viðvik mitt. Höfðinglega boðið það, og ætla ég ekki að hugsa málið eins og Helgi Bjöss gerði, garmurinn sá. Reyndar kom frétt í moggann daginn eftir að Hilmir væri hættur í leikhúsinu, hann hefur kannski lofað öðrum en mér miða þetta sama kvöld, stórskuldugur útum allan bæ.
Nú svo aðfaranótt laugardagsins seinasta þá var ég á heimleið úr bænum eina ferðina enn, og á eigin bíl. Ég ákvað að brenna niður Laugarveginn í von um að þar stæðu hrollkaldar píur í von um yl. Ekki var það nú raunin, en á næstum sama stað og Hilmir Znær settist uppí var nú á ferðinni Ilmur Kritjáns. eða Ilmur Kristján eins og hún kýs að kalla sig. Hún setti upp alþjóðlegt "má ég fá far" merki, þumalinn góða. Ég nikkaði hana og hún opnaði drekann. "Má ég fá far ?" og ég svaraði: "Bara af því að þú ert fræg!" Hún settist inn og vinkona hennar fylgdi eftir. Svo var svo djöfull hlegið á leiðinni að menn sáu vart úr augum. Ég skutlaði henni á James Bönd, reyndi að segja henni að það væri lokað kl. 04:38, en hún virtist þekkja eigandann. Æi ég man það ekki, en ég fékk engan helvítis miða hjá henni.
I wanna make a shout out to Eydís. I hope she has stopped crying.
Also want to make a shout out to the riverdanse man at Prikið.
And last but not least, a shout out to the High Five guy witch made everybody laugh.
-Áhugasamir hafið samband!