Hólmur hæli ?
Ég fór á Stykkishólm um helgina. Lögðum af stað á laugardags eftirmiðdegi og vorum komnir um níu tíu leytið. Í mínum eigin huga var ég reyndar á leiðinni á Stokkseyri, staðnum með humarnum sem bara bráðnar, en svo fattaði ég það þegar við vorum að koma úr Hvalfjarðagöngunum hvert förinni var heitið. Ferðafélagar mínir voru þeir Jörgen Snú Snú og Bjartmar kantur. Thelma frænka hans Bjartmars fór ekki með og fær mínus stig í minn kladda. Fyrir þá sem eru ekki með á nótunum þá er Bjartmar einmitt frá Stykkishólmi, og hann lofaði að láta ekki lemja okkur. En við mætum þarna svona um kvöldmatarleyti og fixum kolluna á staðnum, gerðum þetta til að spara tíma. Strákarnir létu mig ekkert vita að ég þurfti að taka svefnpoka eða annað með, og var mikið grín gert að kallinum þegar þeir byrjuðu að losa skottið, ég sagði þeim að þeir væru hálfvitar. Síðan var bara blandað g&t og menn hófust handa. Mamma hans Bjartmars mætti svo heim með vini sína og þau settust hjá okkur og byrjuðu að spjalla og gera grín að Bjartmari. Reynda fannst mömmu hans Bjartmars hann ósköp sætur svona nýklipptur og minntist á það með um 7-11 mín. millibili alveg þangað til við fórum daginn eftir. Þegar við sitjum þarna við borðið, allir orðnir mattir, þá segir Jöggi eitthvað á þá leið: "hvað myndiru gera ef Bjartmar kæmi heim með strák ?" við mömmu Bjartmars! Og hún segir: mér væri bara alveg sama!" Og þá segi ég: "Ja Bjartmar þú yrðir allaveganna ekkert fúll ef að hún kæmi heim með konu!" þá sló þögn á hópinn! Ég vissi ekkert hvert ég átti að fara og var eins og hálfviti. En svo var þessari umræðu bara eytt. Síðan fórum við í party þar sem var verið að spila Britney Spears lag á harmonikku. Spes. Síðan fórum við á kaffihúsið og keyptum allt allt of mikið af veigum. Ég talaði um mótorhjól við stelpu sem vissi meira um þau en ég nokkurntímann. Það var þarna líka drengur sem kallaði mig nonnakjuða !! Hann græddi bjór útá það. Hvernig í andskotanum vissi hann hver ég var ? Spes. Síðan fórum við uppá eitthvert fiskvinnsluhúsþak og sungum og trölluðum, ég skar mig á hendinni stemmningin var slík að höndin bara þoldi hana ekki. Síðan fór kappinn að verða full mattur og var sendur heim í Stykkishólmískum leigubíl eftir að hafa selt upp þessum líka fínu kennarafrönskum og man ekki stundina meir. Já svo lánaði ég líka mömmu hans Bjartmars símann minn og hún hringdi í Pétur félaga minn og skildi eftir hressandi skilaboð á talhólfinu hans. Um morguninn fórum við léttklæddir út í sólina í garðinn hans Bjartmars og spiluðum smá bolta síðan fórum við heim á leið eftir langloku og pylsustopp á olís þar sem stelpan sem skuttlaði mér heim vann, hún gerði grín að mér. Við hlógum eins og við gátum á leiðinni heim og Jöggi stytti ferðina um helming með misgáfulegum uppátækjum sínum á leiðinni. Við vorum sammála um að lessubrandarinn minn hefði verið hápunktur ferðarinnar.