föstudagur, janúar 28, 2005

Kubbaknús!

Í dag er vondur dagur. Helgin byrjar illa. "A red sun rises, blood has been spillt". Einn af mínum bestu vinum, og vel það, fór utan í dag, og vel það. Hinumegin á hnöttinn. Er það gott eða slæmt? Kannski sitt lítið af hvoru, þó meira af öðru hvoru! Mér líður allavega nógu tussu bölvanlega. En tíminn á að lækna öll sár, ætli Triple H sé að lesa það í læknisfræðinni. Hann hlýtur þá að hafa lesið það soldið oft, hann er alltaf að lesa. -Ég gæti örugglega samið ágætis rokk/popp slagara úr öllum ensku texta frösunum sem yfirfylla hausinn á mér núna, þannig að útúr flæðir. Meira um þetta seinna.
-Mér veitir ekki af kubbaknúsi!

-Áhugasamir hafið samband!
Complex ?

Heyrðu, heyrðu! Það er búið að hafa uppá lukkudýri trommarans í Dikta! Matthildur Dröfn Birgisdóttir hefur sko verið að ala manninn í Aarhus! FOKKING ÓTRÚLEGT!!! Hvort hann klístri fókus myndirnar aftur uppá vegg við þessi fagnaðarerindi er nokkuð ljóst, eða allavega svona í og með.

Var ég búinn að nefna ótrúlegustu plötu þessa árs? Life Begins Again með Jimmy Chamberlin Complex. Hans fyrsta sólóplata. Þeir sem ekki vita hver hann er geta étið alla sína hatta og vel það. Ég bara get ekki hætt að hlusta á þetta kikvendi.

Lára er náttla allstaðar, allavega þar sem ég er. Skrýtið!? Hún var bara í coveri. Strákarnir í Tenderfoot tóku "feedback" til nýrra hæða og ýlfruðu í svona einn og hálfan! -Óttar of Tristjan er kominn á Double Bass, en hann minnir einmitt á vonda kallinn í Spider Man 2. Shadowly! -Bíddu er hann þá hættur í Tristjan? Við skulum, lesandi góður, vona ekki því Tristjan er töluvert betra band. Tartalettu Tobbi er náttla að gera hrikalegt mót á öllum strengjum. Og ég tala nú ekki um Pjetur, bara tala ekki um hann. -Þess má nú til gamans geta að Pjetur Jr. eða Harry Potter eins og hann er kjellaður er í svaka grúppu með Idol stjörnu innanborðs. Þeir kalla sig Telepathetics, og treystu mér fyrir demo versíóni af laginu Last Song, sem er bara tussu gott! Je!

Ég var að fá nýja týpu af fluguhnýtingaskóm á netverslunina. Þeir eru með þykkari hæl og stífum yfir ristina úr nýrri týpu af soðnu svínsleðri. Hægt er að panta í pörum í febrúar.

-Áhugasamir hafið samband!