föstudagur, nóvember 12, 2004

Núna eða ekki!

Djöfull er gaman þegar jólin eru að koma. Hagkaups bæklingurinn verður alltaf glæsilegri og glæsilegri þegar nær dregur jól. Þessar stelpur í nærfata auglýsingunum fá mitt atkvæði, hvar sem er! Ég bíð alltaf spenntur þegar ég kem heim að loknum skóladegi eftir að sjá hvort það er kominn Hagkaups bæklingur inn á borð til mín.

Mig langar að biðja allan þann gríðarfjölda sem kemur hérna á degi hverjum og rennir yfir textann hjá mér, að fjölmenna á Byltutónleikana annað kveld! Frítt inn og dansað á borðum!

Svo á sunnudaginn er Dikta að fara að spila í Battle of the Bulge/Bands! Herlegheitin byrja kl.19:00, og gilda atkvæði áhorfenda 50% á móti dómnefnd í undanúrslitum. Þannig að ég vil biðja alla sem vettlingi geta valdið að mæta og hvetja strákana okkar. Sjálfur mun ég verða með fyrstu mönnum til að mæta og hvetja piltana, ég mun sitja fremst og láta vel í mér heyra!
DO IT!!!

Það er komið að tímaskilum í lífi mínu. Ég hef slitið mig frá miklu sprelli. Ég er hættur að gera grín í bloggurum utan af landi!

miðvikudagur, nóvember 10, 2004

Kelvin og Paddon!

Mér þykir ótrúlegt hverju ég finn uppá að gera til að komast hjá því að læra. Um daginn skrifaði ég 8 blaðsíðna erótíska sögu í snarheitum. Svona 2 tíma að því. Ég hef ekki skrifað ritgerð fyrir skólann í þessari lengd á undir mánuði, svona sem dæmi.

Það eru tónleikar hjá Byltunni á laugardaginn. Stúdentakjallarinn ætlar að innbyrða gleðina og vitleysuna. Enginn aðgangseyrir svo múgurinn geti eytt meiru í brennsa. Ætli ruglið hefjist ekki um eða eftir miðnætti. Það á víst að fylla staðinn af borðum, svo það sé hægt að dansa á þeim. Hljómar svo vel að allir hafi verið dansandi upp á borðum, slík var stemmningin.

Ég ætlaði að segja eitthvað meira, man það ekki.

-Áhugasamir hafið samband!