þriðjudagur, september 13, 2005

PARDON

Ég vil biðjast innilegrar afsökunar á letinni, ég hef verið mjög upptekinn seinustu viku.

Peyinn er farinn að bryðja parkódín forte hjá Actavis á launum. Pillurnar eru góðar á bragðið. Shout out til Robba rúsínu.

Í dag fór ég í Nýherja í Borgartúni. Á meðan að ég beið eftir afgreiðslu þá var þarna súla sem gegnir mikilvægu hlutverki sem partur af burðarvirki hússins. Súla þessi var síðan umvafin 6 labbtölvum. Allar voru þær nettengdar, þannig að ég var ekkert að tvínóna við hlutina og opnaði heimasíðu hljómsveitarinnar Dikta á þeim öllum. Svo fékk ég afgreiðslu.

Passaðu þig, ég kem úr launsátri!

-Áhugasamir hafið samband!