fimmtudagur, nóvember 25, 2004

Megrun

Ég er með hérna hlekk sem gæti létt á ykkur í þessu déskotans skammdegi. http://www.weebl.jolt.co.uk/archives.php
Nú svona til að koma ykkur af stað þá mæli ég með history 3!

Strákarnir í Dikta fóru til Akureyrar seinustu helgi með Singapore Sling og Þóri. Það var gigg á Deiglunni. Ég slóst með í för og þetta var ægilega skemmtileg ferð. Ég rétt missti af skráningu í Herra Norðurland, en sigur minn í þeirri keppni hefði verið auðveld fæðing hefði ég bara tekið þátt. Bæjarlífið á Eyrinni er dött klukkan 3, okkur rokkurunum til mikillar skelfingar og var brugðið á það ráð að lykta uppi teiti.
Ég Steinar og Bíbí héldum uppi heiðri þessa föruneytis og fórum sem talsmenn um Akureyri í leit að stuð stuð stuði. Það fannst í blokkaríbúð númer 603, man reyndar ekki adressuna en blokkina prýddi númerið 29. Ívar bauð okkur svo inn eftir smá tiltal. Íbúð hans var mannlaus fyrir utan hann sjálfan og lítið um stuð stuð stuð. Þannig að við renndum í einn slagara, skutum þjóhnappa vorn í döðlur með teygjubyssu og kvöddum svo Ívar sem stóð tárvotur í gættinni við mikinn söknuð.
Svo var haldið upp á gistiheimili þar sem menn sváfu úr sér bróðurpart veiganna í faðmi hvor annarra.
Haldið var svo heim á leið í traustum höndum Bjöss The Bus og stoppað á þekktustu áningarstöðum okkar ástkæra og ylhýra. Gústi fagnaði síðan afmæli seinna það kveldið og var hann hylltur á viðeigandi hátt. Ég þakka hér með boðið.

Það er hugsanlega á leiðinni flúnkuný ryksuga til landsins frá Bretlandi. Þegar ég fæ hana í hendur mun ég bjóða mínum nánustu í smá kynningu á helstu fídusum hennar. Ekki er of seint að panta sugu en tíminn hleypur óðar frá okkur.

-Áhugasamir hafið samband!