Ókeyp.is
Ég vil nú byrja á að óska þeim sem eiga afmæli í dag til hamingju með daginn!
-Vá! Ef stærðfræðikennarinn minn væri gella þá myndi ég sko bjóða henni kynlíf í skiptum fyrir ágætis einkunn í áfanganum. Jafnvel bara einkunn fyrir frammistöðu mína í rúmminu. Sú einkunn gæti nefnilega ekki orðið lægri en einkunnin sem ég á eftir að fá á prófinu, þótt við myndum liggja með bakið í hvort annað og lesa nýjustu ævisögu Halldórs Laxness upphátt sitt í hvoru lagi og reyna að yfirgnæfa hvort annað.
Tóbíaz Möller var að kvarta um daginn yfir því þegar fólk skrifaði eitthvað án þess að nota greinarskil. Ég er búinn að vera ýkt stressaður yfir þessu og reyni ég í skrifum mínum að valda Þorbyrni Egner ekki meira hugarangri en raun ber vitni.
Ég var að lesa um fyrirtækið Purity Herbs á Akureyri áðan. Þetta er merkilegt fyrirtæki og ég hef notað vörur þess með mikilli ánægju. Ég er að hugsa um að sækja um styrk fyrir strákana í hljómsveitinni Dikta. Þeir geta þá makað hvorn annan í allskyns olíum og gúmmelaði eftir tónleika, sem taka náttla mikið á allan líkamann og sálina. En sérgrein P.H. er einmitt líkaminn og sálin. Ég vill að öllu gríni slepptu minna á það að ein olían sem fæst hjá þeim sem kallast Ástareldur má bera á allan líkamann, og þá meina ég ALLAN!
Það er nú soldið skondið að heyra læknisfræðinema tala um það hvað brjóstvöðvinn (M. Pectoralis Major e Minor) sé lítilsverður. Ég ætla nú ekki að fara að telja upp það sem hann gerir í daglegu lífi hér, en það ætti að vera nokkuð augljóst ef maður bara hugsar um það. Og það skrýtna er að það virtust bara allir læknisfræðinemarnir vera nokkuð sammála þessu. Þeim fannst t.d. bekkpressa vera ein heimskasta og asnalegasta æfing í þessum heimi. Það eina sem þeim datt í hug sem notagildi var þegar maður ýtir bíl!
Jæja nú er ég kominn með læknastéttina yfir mig, svo er það bara skipstjórar næst!
Er að hugsa um að láta tékka hvort ég sé smitaður af miltisbrandi, bara svona til vonar og vara. Ætli maður láti ekki tékka á eistum og heila í leiðinni, hvort þau séu á réttum stað eða hvort víxlun hafi átt sér stað.
-Áhugasamir hafi samband!