miðvikudagur, febrúar 09, 2005

Cod bless you!

Jæja, þá er vitleysan að ná hámarki. Kári bauð okkur krökkunum í líffræðinni í smá öl og lokur á fös. seinasta. Það var dúndur hressandi, ágætis búlla sem kallinn er með. Eftir veigarnar var svo haldið niður á Pravda. Þar hélt maður áfram að keyra í sig ölið. Davíð keypti það víst þarna! Ég er reyndar þeirra skoðunar að smjörsýrunni hafi verið lætt oní glasið mitt, ég var allavega hásvartur, spyrjiði bara Lollu, Árna, vonandi ekki Adda, Sigga, Robba, Siggu, Gumma, Chrizz og hina krakkana. Ef þið lumið á ferðasögum, af mér, þá ykkur velkomið að hripa þær á blað og lauma undir klósetthurðina þegar ég fer. SHITT !!!

Laugardagskvöldið var svo þokkalegt. Það var hressandi þegar það rann af mér svona um 2-3 á laugardeginum og svo "þvínka" svona fram að miðnætti (þarna kemur smjörsýrukenningin aftur inn). Kjebbinn kíkti til Betu í 20 ára afmæli. Það var ógurlega frískandi. Verðandi læknaneminn "Gunna Mæja" átti kvöldið og stal algerlega sviðsljósinu frá Betunni. Hún Gunna okkar var með rúmlega 12.000- kr. belti úr leðri. Það ógurlega flott! Hún kunni helminginn í anatomíu líkamans, altso framhandlegg vinstir handar. Hún vissi allavega sko að það var eitthvað sem hét "chii.." eitthvað sem tengdist "dótinu þarna" og "hreyfði þetta"! Svo vissi hún líka hvað rassinn(vöðvinn) hét á fræðimáli, jú, "Maximus"! Fróð stelpa þar á ferð. Enda með 9.8 í meðaleinkun úr menntaskóla. MR minnir mig. En þetta var hressandi kveld. Ég hitti gamlan kúnna leigubílastöðvarinnar. Það var engin annar er Ilmur Kristján. Ilmur var brakandi hress, en var því miður ekki á heimleið. Þannig að ferðinni var haldið, eftir viðkomur á bestu stöðum borgarinnnar og auðvitað var Lára mætt að bögga mig, niðrá pulsutorg og við renndum niður slöngu, ég og Tóbíaz Möller. Ellert fékk sér vöfflu. Nú ég skutlaði þeim heim og ætlaði svo sjálfur heim, en annað kom á daginn. Við tjörnina varð ég var við ógurlega myndarlegan rass. Fastur við þennan rass var búkur hendi og eitthvað fleira. Þumalputtinn öskraði á far og ég gat ekki annað en hleypt uppí (hvað er að verða með þetta skutl allt). Djöfulsins skutla !!! -Hildur klikkaði á partýinu, kom ekki! Hvað er það ???

Djöfull er leiðinlegt að lesa svona löng blogg!

-Áhugasamir hafið samband_