Lu Rjúp !
Þegar ég er búinn í prófum ætla ég á rjúpnaveiðar. Ég er aðeins búinn að fylgjast með skriftum í mogganum milli tveggja manna, annarsvegar sportveiðimanns og ég tel mig vera í þeim flokki og svo hinsvegar magnveiðimanns. Sportveiðimenn veiða "oftast" aðeins fyrir sjálfa sig, en ég ætla ekki að fara að alhæfa nokkuð hérna. En það þýðir að þegar þeir eru komnir með nóg í jólamatinn eða veisluna þá halda þeir heim á leið. Magnveiðimenn eru hinsvegar að veiða til að selja, og eru þar af leiðandi að veiða töluvert meira en sportveiðimenn því meiri veiði = meiri sala = meiri peningur. Magnveiðimenn eru um 10% veiðimanna en veiða meira en helming þess sem er veitt og skráð á ári. Þessi magnveiðimaður sem mig minnir að heiti Indriði og er frá Skjaldfönn vill núna friða rjúpuna eftir að hafa átt stóran þátt í því að koma stofninum í þær ógöngur sem hann er kominn í.
Mér finnst þetta vera svolítið eins og ef Hitler hefði allt í einu stungið upp á því að friða gyðingana.