fimmtudagur, nóvember 21, 2002

Um daginn var víst Herra Ísland. Ég horfði ekki á keppnina með báðum augum. Mér finnst keppni í fegurð svolítið steikt hvort sem það er hjá konum eða körlum, og spái ég því að eftir 5 til 10 ár munu lýtalæknar keppendanna taka við verðlaununum en ekki herrarnir eða frúrnar. Svo eftir keppnina verða menn að dreifa nafnspjöldum og svoleiðis. Þetta verður svona eins og músíktilraunir lýtalækna, svona stökkpallur fyrir hæfileikaríkt fólk.

þriðjudagur, nóvember 19, 2002

Það eru víst dúndur-dagar á Pæsan Hut !
Ég hef lengi velt fyrir mér hvað andinn sé, ef hann er þá til, og úr hverju hann væri þá. Er hann ef til vill einhverskonar bylgja, eða þá hugsanlega mystur sem býr inní okkur, mis þétt eftir tíð og tíma. Það ættu allavega andans menn að vita. En er andinn þá "einhver" !?? Býr inní okkur öllum einn og sami andinn, svona samandi, bara á mismunandi skeiðum ?

mánudagur, nóvember 18, 2002

Svo datt mér líka í hug Frank Kassetta !
'Eg var að setja upp svona blók síðu (gay síða - myndir koma) eins og margir aðrir. Er nú samt ekki að fela mig bakvið einhverjar dömur eins og yfir-blókararnir Skúli og Önundur. En málið er að ég get ekkert farið inn á hana. Þannig að mér líður eins og Ólafi Ragnari Gríms standandi fyrir framan Hollensku þjóðina og fara með ræðuna fyrir sjálfan sig, í hljóði !