þriðjudagur, maí 10, 2005

...þá er þrennt er!

Ég var að fara með sömu fokking B/W filmuna í "prentun" í 3ja skiptið í dag! FOKK!!! Fyrst voru rendur á öllum myndunum, nú er "kusk" á flestum myndunum. M.F. Verst hvað það er ómyndarleg stelpa að vinna í Hansa á Laugaranum (við hliðina á Dikta). Myndirnar sökka samt. Nema 2-3, ein af stóra b og ein af JB og Scully.

Híí hahhh!!! Fékk bara nýjan iPod. Þannig að þeir sem segja að íslenska Apple búðin sé með lélega þjónustu geta haldið kjafti. But it´s still pink, ég meina rose.

Var í partyi um daginn hjá Bjarna of Jeff Who?. Þar hlustuðum við á Moscow með Strax. Síðan hlustuðum við á Sanity með HAM. Í DAG í útvarpinu minntist Búi B. á þetta Strax lag, þar á eftir spiluðu þeir Sanity með HAM, ooooog ég sá Sigurjón Kjartansson í Fjarðakaup, sem var mjög súrealísk upplifun. Það fyrsta sem ég gerði var að líta í kringum mig og leita að kamerum. Hélt að þetta væri Svínasúpu taka. En það var hinsvegar ekki. -En skemmtileg röð tilviljana.

T. minus 2 days!

Sælla er að gjefa en þiggja.

Er að leita mér að Hondu Prelude ´74 módeli, lítið eknu!

-Áhugasamir hafið armband!