föstudagur, nóvember 29, 2002
Djöfull er A Perfect Circle viðurstyggilega góð hljómsveit !! Svo er það Tool sem er einnig hrikaleg og einset ég mér að fara á tónleika með þessum hljómsveitum áður en ég er allur, og með mjög stuttu millibili !!!
fimmtudagur, nóvember 28, 2002
Í dag í líffræði ræddum við um vistkerfi. Það er partur af vistfræðinni, sem er áfangi þar sem við erum undirbúin undir langar setur á elliheimili að spila vist. Þar er farið í allskonar kerfi og reglur.
Helló all you crazy people out there !!
Í dag er ég frekar þreyttur. Ég held að ég eigi við einbeitingavandamál að stríða, því þannig er mál með vexti að ég sit hérna uppí HR og er að "læra" en er samt ekki að gera það. Reyndar jú aðeins, og það er sko miklu meira en ég hefði gert heima hjá mér, því þá er ég bara í ruglinu. Fer að taka til í herberginu, ditta að ýmsu sem mér er nákvæmlega sama um, æfa mig að lyfta haglaranum og í rauninni allt annað en að læra. Ég skoða klám.
En hérna sit ég og er að skrifa, sem er allt annað en að læra. Hvað á ég að gera ? Áhugasamir hafi samband.

miðvikudagur, nóvember 27, 2002
Bremsur
Í gær var ég að reyna að laga bremsurnar á bílnum mínum. Það er nebbla þannig að þegar ég hemla nauðugur þá læsir hann bara öðru megin að framan, nánartiltekið vinstra megin. Þetta er ekki gott ef ég þarf að hemla nauðugur á mjög miklum hraða 300 km/klst og uppúr. Þessvegna tók ég í sundur bremsu"kerfið" hægramegin að framan, hélt kannski að dælan stæði eitthvað á sér. Og viti menn þegar ég var búinn að rífa allt í sundur, blóta og ragna, prófa dæluna og stimpilinn setja allt saman aftur, fara út og neggggggglla niður, þá hafði ekkert breyst. Andskotans. Gæti verið loft á kerfinu ? Áhugasamir látið vita.

Hann Elli comradinn minn er að fara að setja á flot svona blók síðu, enda þveröfugur kallinn. Ég býst við að hún verði góð, enda ern maður á ferð. Ég vill biðja hann að fara vel og ganga allt í haginn með sína blóka og síðuna. Hann hefur kosið að kalla hana slepjuna eða slepja með stóru eða litlu s-i, er ekki alveg viss því hún virkaði ekki áðan þegar ég ætlaði inn á hann/a. G.N. gott fólk og S.R.
þriðjudagur, nóvember 26, 2002
Ástæðan fyrir að ég er ekki kominn með teljara er sú að það er ekki komin nógu góð og hraðvirk útgáfa af honum á markaðinn. En ég lofa að strax og hann kemur, þá kemur hann.
Mér finnst það gremjulegt að þegar mest er að gera í skólanum/lífinu þá styttast dagarnir, mér finnst þeir ættu að lengjast. Væri til dæmis til í að sofa í svona 2 ár akkúrat núna. Og kannski læra að prjóna eins og Stallone gerði í myndinni þarna.
mánudagur, nóvember 25, 2002
Í hádeginu í dag var farið á "kennarann" (KFC) til að halda uppá vel heppnaða undirskript. Þar var rætt um duran duran, minnisleysi og hassheila í orly, sem var mjög fyndið, samt svona had to be there moment.
Um daginn sá ég manneskju sem ég hef ekki hitt um langt skeið. Hún var með nýtt hár. (Hún á hjá mér sokkapar og netabol.)
Í gær sá ég brot úr þætti frá útlöndum um hana Björk Guðmundsdóttur. Þetta var góður þáttur um enn betri listamann. Já listamann. Mér finnst að íslenskar sjónvarpsstöðvar ættu að sýna meira af myndböndunum hennar í bland við eldra efni sem hún hefur gert, því það er helber snilld.