Pældu í því ef þú værir gervitönn ?!!
miðvikudagur, apríl 30, 2003
Þú !
Ég stíg útí frosið myrkur vetrarins,
hjarta mitt þanið af þér
og sé sólina í fyrsta skipti.
Ekki vitandi í hvorn fótinn ég á að stíga
hryn ég í götuna
Þar ligg ég óendanlega
með þig í vitum mér
og stari útaf engu.
(kallinn bara penni, andlegur hylur)

þriðjudagur, apríl 29, 2003
Benispeni !
Ég er bókastaflega í skýjunum. Eftir að hafa verið nýbúinn(ekki Bubba) að borga staðfestingagjald til Benidorm? þá frétti ég það frá Zqla og fleirum að þeir ætluðu til US and A á tónleika með A PERFECT CIRLCE og öðrum mega böndum. En í dag er allt útlit fyrir að þeir séu ekki að fara og það er mikill léttir. Ha haha !!!

Og hvað nú ???
Ég fékk plötuna "eftir þögn" með Skúla Sverris og Óskari Guðjóns um jólin seinustu. Þetta er mjög róleg plata, en líka ofsalega góð.
Skora á alla þenkjandi menn að líta á hana. Fyrst um sinn vorum við, ég og platan, ekki að grúfa vel. Svo vann hún á og þetta er rosaleg fokkings plata.

mánudagur, apríl 28, 2003
Bræður munu...
Hann bróðir minn er andskotans. Hann fékk lánaða hjá mér allt að því nýja sundskýlu, hannaða af speedo hönnunar teaminu og var hún eigi ljót. Hann týndi henni í kjölfar þessa láns og hefur ekki sýnt nein merki um finna þessa skýlu aftur né tilburði, hvað þá að kaupa nýja. Til gamans má geta fyrir þá sem lítið vita að ég keypti þessa skýlu sjálfur. Einnig er bróðir minn búsettur í Danmörku.
Mér hefur hreinlega blöskrað vegna framkomu bróður míns sem á að vera þroskaðri einstaklingur en undirritaður, enda með fleiri ár að baki.
Ég skora hér með á Hallgrím að bæta ráð sitt og bæta skaddaða ýmind sýna, með því að gefa mér nýja skýlu, því annars fær hann ekki jakkann sinn og firewire snúruna aftur.