laugardagur, október 23, 2004

Útihátíðarstærðir!

Hahh! Ég var að spila í gærkveldi á Grandrokk með Dikta! Það var svaka stuð, ég fékk gæsahúð í fyrsta skipti í langan tíma á tónleikunum, sem er mjög gott. Á undan tónleikunum okkar fór ég að kíkja á Dr.Spock, SEM VAR GEÐVEIKT!!! Guðni og Addi (grunnatvíeykið) voru báðir berir að ofan og fór unaðshrollur um kvennkosti hússins.
Þar á undan sá ég bang gang, sem var einnig geðveikt, það voru 3 sköllóttir menn í bandinu, það hefði þó vakið lukku hjá mér allavega ef Hervör söngspýra (equipped with cameltoe) hefði líka verið sköllótt. Sigtryggur Baldurs var óútreiknanlega frábær bakvið settið og setti skondinn svip á senuna með "afa-húfu" og "ömmu-sólgleraugu". Og Lára skaut upp kollinum, týpískt!

Eftir tónleikana fór ég á Skuespilerekelleren og sá Láru sem gaf okkur "teaser" af einu versta playbacki ever, undir annars hugljúfum englasöng. Þar hitti ég !!!!!!GIZMO!!!!!! sem var dúndur ferskur, hann tók þétt á því. Ég sannfærði Tristian-liða um að taka Sverðliljuna, þeir sáu á endanum ljósið! GIZMO fór á undan okkur í bæinn, hef ekki séð hann síðan. Frétti af honum á mamas tacos þar sem hann hefur víst fengið vinnu, það sem landaði ráðningasamningnum var þetta tyrkneska yfirbragð hans.
Síðan hitti ég Hr.Imsland og co á Kvebbanum? og endaði kvöldið í dægilegri salíbunu niðrí rassgat.

Ég er ekki að fúnkera rétt þegar kemur að skilning á stærðum á bolum frá fyrirtækinu Margt Smátt. Það virðist vera að hér sé um ákveðnar "útihátíðarstærðir" að ræða. Þær virka þannig að t.d. fyrir mig, sem nota M-L, þá á ég að geta verið í s.s. 2-3 ullarpeysum, 2 svefnpokum eða dúnúlpu undir bolum í þessum stærðum. Þannig að ef ég ætla ekki í neitt undir bolinn þá verð ég að vera í S. Systir mín sem er 9 ára er t.d. í 4-6ára týpunni. Er einhver með útskýringar á þessari annars ágætu hugmynd. Það væri kannski þjóðráð að setja "útihátíðarstærðir" í sviga fyrir aftan stærðarnúmerin!
Dæmi:
M
(útihátíðarstærð)

-Áhugasamir hafið samband!

Þetta: http://www.b2.is/?sida=tengill&id=71845
- er Scrummtrielessent!

sunnudagur, október 17, 2004

En god ide er lige so værd som en dorlig en hvis den ikke udföres rigtigt i praksis!

Þetta vitna ég í Mette K. Andersen, og eru þetta orð að sönnu!
Hinsvegar var ég að spila á Grandrokk um helgina, s.s. í gær, og það var ágætt. Hef reyndar aldregi upplifað jafn lélegt sánd á GR en það er nú bara þannig. Við hituðum upp fyrir tvö bönd sem eru bæði af dönsku bergi brotin. Nú tala ég um böndin epo-555 og PowerSolo. Epóið var fínt en ég sá ekki PS. Fór síðan á Gaukinn þar sem ég sá Ensími rokka allt til fjandans, þeir voru sko á ild! JEG HADER HAUKUR! Lára skaut náttla upp kollinum, týpískt.
Mig hlakkar óneitanlega til að fá nýja APC diskinn í hendurnar, imagine er að gera mjög gott mót.
Er einnig að leita að fólki sem getur þurrkað ákveðna hluti úr minni, eins og t.d. helgina sem var s.s. á undan þessari. -Áhugasamir hafið samband.