fimmtudagur, september 30, 2004

Eat, shit and dine in USA!

En úr einu í annað. Kennarar við Háskóla Íslands hafa nú tekið á það ráð að festa límmiða á eigur nemenda við Háskóla Íslands með minnispunktum, og segja þeir að nemendur eiga auðveldara að muna það sem stendur á miðunum ef þeir eru einfaldlega límdir við eignir nemenda. Ekki hafa fengist svör við því hvort þetta sé vísindalega sannað, eða hvort að um rannsóknavinnu sé um að ræða. Búast má við að þeir nemendur sem eiga hvað erfiðast með að muna tiltekna hluti eigi það á hættu að límmiðarnir verði bókstaflega festir á nemendurna sjálfa. Límmiðar þessir eru af stærðinni A5 og er úr þunnum pappír og með afar sterku lími, þannig að þeir eru sveigjanlegir og haldast vel á öllum yfirborðum.

Ég vil hér með koma á framfæri þökk til allra starfsmanna Háskóla Íslands, sem bera hag nemenda sinna fyrir brjósti. Þeir eiga hrós skilið fyrir prúðmannlega framkomu og visku, enda ekki við öðru að búast af rjóma þjóðfélagsins. HÚRRA, HÚRRA, HÚRRA !