föstudagur, desember 12, 2003

Úr einu í einu
Ég var að pæla í því þegar maður sækir um skotvopnaleyfi þá þarf maður að kaupa sakarvottorð af löggunni til að láta lögguna fá, svo að hún viti að maður sé ekki með neitt óhreint á sinni sakaskrá!? Er ég að verða geðveikur, eða var ég að kaupa blað af fólki til að geta látið þau fá það aftur? Þetta er svona: "Ég kíki sko ekki á þetta blað nema þú kaupir það af mér" fýlingurinn. Fyndið!
Svo þegar þú ætlar að sækja um B-skotvopnaleyfi, sem gerir þér kleift að eignast stærri riffla og hálfsjálvirkar haglabyssur, þá þarftu að skila inn sjúkravottorði, þó að þú hafir gert það fyrir ári! Ég spurði í fávisku minni, "af hverju fær maður þá ökuleyfi í 50 ár án þess að endurnýja sífellt læknisvottorð" og þá sagði konan hjá ríkinu mér: "vegna þess að þetta er allt annars konar leyfi"! Þetta náttúrulega liggur í augum uppi(úti)!

mánudagur, desember 08, 2003

Í Hundruðum gramma talið !
Í manískri leit minni að fróðleik og visku rakst ég á rafbókun á veraldarvefnum. Bókun þessa á einn valinkunnurandansmaður, félagi félaga míns, og menntamaður með meiru (mjög fínn gaur). Hann var að tala um hamborgara! Sjálfur hafði hann fengið sér 280gr. borgara og bróðir hans 350gr. borgara, engin smáræðis kvikindi þar á ferð. Þegar ég renndi yfir þessa bókun hans Onunds þá minnti þetta mig óneitanlega á kvöldmáltíð eina sem mér áskotnaðist í menningarferð einni suður á Spáni. Þar höfðum við félagarnir tekið okkur pásu á annasömum menningar "rúnti" og ákváðum að nú skyldu menn matast. Við höfðum heyrt gróusögur af ógurlegum nautasteikum upp í allt að 700 grömm, safaríkar og löðrandi í sósu, en tókum slíkar frásagnir með varúð. Við fórum á stúfana, og viti menn þarna voru þær í öllum sínum 700gramma veldum. Við vorum ekki lengi að panta á línuna (4 x 700gr. = 2,8 kíló!) Svo slöfruðu menn þessu í sig og ég var fyrstur með mína, og ekki einu sinni allir kláruðu!
Á leiðinni heim þá gengum við frammá skilti á veitingastað, því miður var lokað, annars hefðum við örugglega kíkt inn. Á skiltinu voru auglýstar 750gr. steikur, við náum þeim í næstu ferð!

Well it´s no burger but !

(Áhugasamir hafi samband)