fimmtudagur, maí 08, 2003

JP (sjá neðar)
Vissir þú að þú getur orðið fallegur af því að drekka malt ?
Athugaðu málið !
Lífsins vælandi rythmi !!
Ég hef verið að reka mig á umræðu í þjóðfélaginu um tvö málefni æ oftar. Annars vegar það að karlmenn eigi erfitt með að tjá tilfinnigar sínar, og hinsvegar það að konur eigi erfitt með að fá fullnægingu. Niðurstaða mín er sú eftir miklar pælingar að þessar meinlokur okkar kynjanna má reka til æsku okkar. Þannig er nú það að í kringum 10-12 ára aldurinn byrja strákar að rúnka sér og læra þar af leiðandi á sín rythmísku leikföng sem þeir og fengu í guðsgjöf. Stelpur er alltaf vælandi í hvor annarri og tala um að þær séu ekki ánægðar með hitt og þetta og læra að tjá tilfinningar sínar, jafnvel árum áður en strákar eru farnir að hugsa mikið í 2/4 eða þaðan af flóknari töktum. Og þannig mastera þær þessa tjáningu líkt og við masterum rythmann. Þannig að nú skora ég á ykkur stelpur að fara leita að þessum ólgandi takti sem býr í lendum ykkar allra, fyrr en ella. Og strákar fariði að væla.



(Umsögn þessi er byggð á vísindalegum upplýsingum, áhugasamir hafið samband !)
Þegar toppnum er náð !
Bróðir minn var að toppa sjálfan sig núna um daginn í ritvillum, heimsku og endurtekningum og endurtekningum. Hann svaraði skrifum mínum um sundskýluna, mjög fagmannlega að því staðið, vil ég hrópa þrefalt húrra fyrir honum, hann á það skilið.