Tvö skinn?
Seinasta færsla hjá mér var kannski soldið ósmekkleg. Það er allavega hægt að skilja hana á þann máta að ef maðurinn þinn sé alvöru menni þá haldi hann fram hjá þér. Eina með öllu. Þetta rann upp fyrir mér áðan. Ferskur!
Ég get ekki hætt að iðnaðarmannast í ókunnugramanna bloggum. Mér finnst það bara svo kómískt, gefur svo mikið. Reyndar er ég kominn á hálan ís með að vera böstaður. En það er kannski það sem maður vill innst inni?
Nú er komið að próftíma, aftur. Hvað á maður að gera? Læra, eða sofa og horfa á viðtækið? Læra er það ekki?!! Í framhaldi af þessari pælingu datt mér í hug að í öllu þessu pilluflóði sem er að drekkja nútíma einstaklingsfélagi sem við búum í, af hverju er þá ekki búið að brugga svona einbeitingar/lærdómspillu. "Þú þarft bara eina, og heilinn er ekki lengur kleina!" "Taktu tvær, og þú verður ekki af lærdómi ær!" "Taktu þrjár og þú fellir ekki yfir lærdómnum tár!" "Taktu fjórar og heilaseilurnar verða BARA stórar!" "Taktu fimm og menntun er ei lengur dimm!" "Taktu sex, og lesturinn er eins og að borða kex!" o.s.frv.
Það var verið að biðja mig um að setja upp comment-a kerfi hérna á síðunni minni. Fannst það sjálfsögð pæling, þar sem held ég allir eru með það nema ég. Svo sagði einhver mér að það væri bara cool að vera ekkert með soleis, sem er líka verð pæling. Svo fór ég að hugsa að það eru kannski líka til gaurar eins og ég sem gætu farið að rugla í mér og fundist það voða fyndið. Reyndar er ég ekki hugguleg ung stúlka, en engu að síður er ég algjerlega á báðum áttum með þetta.
-Áhugasamir hafið samband!