föstudagur, janúar 31, 2003

Bætur !
Svakalega fer það í pirrurnar á mér að lög á skjá einum eru ekki kynnt með nafni á hljómst. og lagi !
Hver er hugsunin ?
Ég var að pæla hver hugsunin væri hjá menntaskólum og fjölbrauskólum að ráða til starfa kennara sem höfðu verið reknir í örðum skólum fyrir það að vera lélegir kennarar. Bæði í MH og FG hef ég verið með kennara í sem voru reknir úr öðrum skólum, síðan ráðnir aftur þar og voru alveg nákvæmlega jafn lélegir. Það hljóta að vera til einhverjir kennarar í öllu þessu atvinnuleysi sem geta eitthað. Svona kennarar ættu að vera komnir með rautt spjald í kennslu, reknir úr leiknum! Alla veganna að senda þá í endurhæfingu. Taka af þeim kennsluréttindin, því þeir eru ekkert að kenna ! Ég er nú kannski ekki mesti námshestur landans, en ég þoli ekki lélega kennara. Þetta eru bara tortur !

fimmtudagur, janúar 30, 2003


tékkið á þessu.
Djöfull.
...Birgitta Haukdal... ...pep_i er best ískalt !!
Í gær voru útgáfutónleikar hljómsveitarinnar Dikta (Skúli chillaðu). Það var góð mæting á Gauknum og allir í miklu stuði. Ég mætti þarna í hlutverki trommara og bar sigur úr bítum, berháttaður að ofan. Það var rosa gaman að sjá hvað maður átti marga góða félaga allsstaðar að. Kvöldið gekk stórslysalaust fyrir sig, en urmull lítilshátta mishappa gerði vart við sig. Gítarólar bókstaflega sprungu af hljóðfæraleikurum og gítar effektar köfnuðu úr rokki. Söngvari sveitarinnar gerði tilraun til sjálfsmorðs þegar við vorum klappaðir upp, hann reyndi að henda sér á sviðið, en það tókst sem betur fer ekki og hann sér eftir þessu öllu saman, gerir bara grín að þessu í dag. Þetta var gott kvöld og magnað. Í dag er ég með harðsperrur í fokking þumalputtunum eftir hrikalegan trommuleik, this is my fyrst time with drumming hardsperrs.